Morð í Ósló

Norska lögreglan
Norska lögreglan AFP

Maður fannst látinn í íbúð í Ekebjerg-hverfinu í Ósló í nótt. Lögreglan segir að hann hafi verið myrtur og hefur lögregla handtekið einn í tengslum við málið, að því er fram kemur í frétt norska ríkisútvarpsins.

Yfirmaður rannsóknarinnar, Øyvind Torgersen, segir að miðað við aðstæður á vettvangi sé ljóst að um morð sé að ræða. Ekki hefur verið upplýst hver sá myrti er né heldur um tengsl hans við þann sem er í haldi lögreglunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert