Kona sem á að hafa reynt að drekkja sér ásamt fjölskyldu sinni í Indlandi var nauðgað af sjómönnum er þeir fundu hana meðvitundarlausa á ströndinni.
Samkvæmt frétt The Independent reyndi konan og fjölskylda hennar að fremja sjálfsmorð eftir að þau voru borin út úr húsi þeirra á fimmtudaginn. Fólkið bjó í trúarlegu samfélagi í Pondicherry í Indlandi.
Tvær systur konunnar drukknuðu ásamt móður þeirra. Faðir hennar og tvær aðrar systur lifðu af. Þau ráku á land meðvitundarlaus á mismunandi stöðum.
Konan heldur því fram að tveir sjómenn hafi ráðist á hana og nauðgað sér er hún lá meðvitundarlaus á ströndinni. Tveir menn hafa verið handteknir í tengslum við málið.
Yfirmaður lögreglu á svæðinu segir að þeir hafi nú viðurkennt verknaðinn. Leiðtogar trúar-samfélagsins sagði að atvikið væri hörmulegt og nú yrði hafist handa við að hjálpa systrunum að finna annað heimili.
Kynferðisofbeldi gegn konum og nauðganir hafa verið vaxandi vandamál í Indlandi undanfarin ár.