Hollande fékk hvolp í jólagjöf

Forseti Frakklands,Francois Hollande.
Forseti Frakklands,Francois Hollande. AFP

Francois Hollande, forseti Frakklands, fékk hvolp í jólagjöf. Dýrið er þriggja mánaða gamall labrador-hundur sem hefur fengið nafnið Philae, líkt og lendingarfarið fræga.

Gjöfin er frá kanadískum uppgjafarhermönnum og kemur frá Montreal. Í frétt AFP-fréttaveitunnar segir að hvolpurinn sé þegar farinn að dreifa gleði um forsetahöllina.

Hugsanlega veitir ekki af, vinsældir forsetans eru í sögulegu lágmarki.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert