Unnusta Karls Filippusar í stífri þjálfun

Sofia Hellqvist og Karl Filippus.
Sofia Hellqvist og Karl Filippus. AFP

Sofia Hellqvist, unnusta Karls Filippusar Svíaprins, fær prinsessutitil þann 13. júní næsta sumar þegar parið gengur í hjónaband. Hún er nú í stífri þjálfun enda fylgir stöðunni mikil ábyrgð ásamt því að einkalífið verður lítið sem ekkert.

Undirbúningur fyrir brúðkaupið hófst í september. Senda þarf boðskort með góðum fyrirvara, hanna fötin og semja matseðil. Ekki hefur verið ákveðið hvaða prestar sjá um vígsluna.

„Undirbúningurinn gengur ljómandi vel,“ segir Hakon Pattersson, en hann er meðal þeirra sem skipuleggja brúðkaupið. Hann vill þó ekki fara nánar út í smáatriði skipulagningarinnar.

Umfjöllun Aftonbladet

Svíar fá konunglegt brúðkaup í júní

Brúneygði prinsinn fann ástina

AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert