Vann 2,7 milljarða

Eurojackpot.
Eurojackpot.

Einn ljónheppinn miðaeigandi var með allar tölurnar réttar þegar dregið var í Eurojackpot í kvöld. Vinningshafinn hlýtur rúma 2,7 miljarða í vinning en miðinn var keyptur í Finnlandi.

Fimm voru með annan vinning og hlýtur hver þeirra tæpar 27 milljónir í vinning.

Fjórir voru með þriðja vinning og hlýtur hver þeirra tæpar 12 milljónir í vinning.

Einn var með fjórar réttar tölur í Jóker og hlýtur hann 100 þúsund krónur í vinning. Miðinn var keyptur hjá Snælandi, Núpalind 1, Kópavogi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert