Fjölmargir þeirra sem sátu fastir vegna snjókomu í frönsku Ölpunum síðustu nótt hafa ekki enn komist leiðar sinnar. Yfirvöld þurftu að opna nokkur neyðarskýli í Savoie héraði en talið er að 15 þúsund manns hafi verið strandarglópar þar síðustu nótt.
Mikil umferð var í gær enda margir annað hvort á leið á skíði eða á heimleið eftir skíðaferð um jólin. Tæplega þrítugur ökumaður lést er bifreið hans rann út af veginum í Belledonne en ekki er vitað um að fleiri hafi látist í ófærðinni í gær og í dag.
Hávaðarok var víða og þurfti að loka höfninni í Calais vegna þess og eins voru garðarnir við Versalahöll lokaðir vegna roksins.
Ekki hefur staðan verið betri í Bretlandi en þar fór rafmagn af heimilum um 100 þúsund heimilum og samgöngur gengu treglega um helgina.
Áfram er spá snjókomu og kulda bæði í Frakklandi og Bretlandi.