Fimm ára skaut níu mánaða bróður sinn

Skammbyssa. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki með beinum hætti.
Skammbyssa. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki með beinum hætti. Wikipedia

Níu mánaða gamall drengur er látinn eftir að skot hljóp úr hlaðinni skammbyssu sem fimm ára gamall bróðir hans var að leika sér með í Missouri í Bandaríkjunum í gær. Farið var með barnið á sjúkrahús en það var úrskurðað látið við komuna þangað.

Atburðurinn átti sér stað í bænum Elmo, rúmlega 190 kílómetra norður af Kansas-borg í Missouri-ríki. Að sögn lögreglu fann eldri drengurinn hlaðna .22 kalíbera skammbyssu og var að því er virðist að handleika hana þegar skot hljóp úr henni. Yngri drengurinn var í leikgrind þegar hann varð fyrir skotinu.

Fógetinn í Nodaway-sýslu segir að lögreglan hafa enga ástæðu til að ætla annað en að um slys hafi verið að ræða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert