Leita að stúlku vegna þjófnaðar

Demanturinn er gríðarlega verðmætur. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Demanturinn er gríðarlega verðmætur. Myndin tengist fréttinni ekki beint. AFP

Lögregla í Hong Kong leitar að stúlku og þremur fullorðnum í tengslum við rán í skartgripaverslun. Skartgrip að verðmæti 4,6 milljóna bandaríkjadollara, eða um 622 milljóna íslenskra króna var stolið úr verslun á föstudaginn.

Fullorðna fólkið þóttist skoða sig um í verslu í verslunarmiðstöð í Hong Kong á föstudaginn á meðan stúlkan, sem talin er vera á bilinu tólf til fjórtán ára, tók hálsmen með 117 karata demanti úr versluninni.

Ekki er vitað nákvæmlega hvernig stúlkan fór að því að stela hálsmeninu. Á myndskeiði úr öryggismyndavél sést stúlkan ganga rólega út úr verslunarmiðstöðinni með hendur í vösum, klædd grárri hettupeysu.

CNN greinir frá. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert