Bjó sjálfur um sárið

Eldflaugaárás var gerð á hafnarborgina Mariupol í Úkraínu á laugardag. Þrjátíu létust í árásinni og 100 særðust. 

Talið er að aðskilnaðarsinnar hafi skotið eldflaugunum að borginni frá svæðum sem þeir stjórna í austurhluta landsins.

„Allt í einu fann ég högg á fæti mínum og flaug yfir grindverkið,“ segir maður sem liggur særður á sjúkrahúsi eftir árásina.  Hann bjó í fyrstu sjálfur um sárið, batt reipi um fót sinn, áður en hann komst á sjúkrahús.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert