Hafði lengi langað að drepa einhvern

Wikipedia

Nítján ára menntaskólanemi í Japan, sem myrti ellilífeyrisþega með exi og trefli, gerði það af því að hún vildi bara drepa einhvern. 

Um er að ræða unga konu sem myrti hina 77 ára gömlu Tomoko Mori. Ákvað hún að kyrkja hana með trefli þar sem gamla konan „var ekki alveg dauð“.

Unga konan var handtekin í gær. Sagði hún í samtali við lögreglu að hún hefði viljað drepa einhvern allt frá barnæsku. „Þetta hefði getað verið hver sem er,“ sagði hún.

Gamla konan hafði reynt að fá ungu konuna til að ganga til liðs við trúarsöfnuð í landinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert