Fundu líkamsleifar í ferðatösku

Í ferðatöskunni var að finna líkamsleifar en ekki er vitað …
Í ferðatöskunni var að finna líkamsleifar en ekki er vitað hvort þær tilheyra einni eða fleiri manneskjum. AFP

Lögregla í San Fransisco leitar nú að manni í tengslum við ferðatösku með líkamsleifum sem fannst í borginni í bær. Taskan var skilin eftir í vegkanti skammt frá höfuðstöðvum Twitter.

Lögregla lokaði götum í nágrenninu í gærkvöldi. Við leit á svæðinu fundust fleiri líkamsleifar. Staðfest hefur verið að um er að ræða líkamsleifar manneskju en ekki er vitað hvort um er að ræða eina manneskju eða fleiri.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert