Vel á annað hundrað meðlimir hryðjuverkasamtakanna Boko Haram voru felldir þegar samtökin gerðu áhlaup á hóp hermanna Tsjad í nágrannaríkinu Kamerún. Tveir hermenn Tsjad létust og tólf særðust í árásinni.
Árásin var gerð á svæðinu Fotokol í norðurhluta Kamerún. Stjórnvöld í Tsjad hafa að undanförnu sent þangað fjölda hermanna og vígvélar til að reyna sporna við uppgangi Boko Haram í Kamerún.
Alls létust 123 meðlimir hryðjuverkasamtakanna fyrir hendi hermanna Tsjad.