Hvetur gyðinga til að flytja til Ísrael

Forsætisráðherra Ísraels, Benjamin Netanyahu, hvatti í dag evrópska gyðinga til þess að flytja til Ísrael en í nótt var gyðingur myrtur í árás á bænahús í Kaupmannahöfn.

„Ísrael er ykkar heimili. Við erum að undirbúa, og hvetjum til þess að innflytjendur frá Evrópu komi hingað,“ segir Netanyahu í tilkynningu. Um svipað orðalag er að ræða og í tilkynningu sem hann sendi frá sér eftir að öfgamenn drápu 17 í hryðjuverkaárásum í París í síðasta mánuði. Þar af voru fjórir gyðingar sem létust í árásunum.

Benjamin Netanyahu
Benjamin Netanyahu EPA
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert