Lék eftir senur úr Fimmtíu gráum skuggum

Bókin Fimmtíu gráir skuggar.
Bókin Fimmtíu gráir skuggar. AFP

Nítján ára karlmaður er í haldi lögreglunnar í Chicago eftir að hann braut gegn konu á svipuðum aldri kynferðislega.

Fram kemur í frétt AFP að maðurinn hefði leikið eftir senur úr kvikmyndinni um Fimmtíu gráa skugga þegar hann braut gegn henni.

Saksóknari heldur því fram að maðurinn, Mohammad Hossain, hafi brotið gegn konunni á heimavist háskóla í borginni á laugardag. Hann hafi skipað konunni að afklæðast og í kjölfarið bundið hana, sett prjónahúfu fyrir andlit og troðið hálsbindi uppi munn hennar. Eftir það sló hann hana ítrekað með belti.

Konan grátbað manninn um hætta en hann varð ekki við því og hélt áfram að beita konuna ofbeldi. Henni tókst að losa hendur sínar en maðurinn hélt þeim þá fyrir aftan bak hennar á meðan hann réðst á hana og kom fram vilja sínum.

Hossain heldur því fram að kynlífið hafi verið með vilja beggja.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert