Drónar yfir París aðra nóttina í röð

Drónar sveimuðu yfir París, höfuðborg Frakklands, í nótt. Þetta er önnur nóttin í röð sem óþekkt flygildi láta á sér kræla. Ekki er vitað með vissu hversu margir drónar voru á ferðinni í nótt en fimm tilkynningar bárust, annars vegar frá almennum borgurum og hins vegar frá lögreglu.

Síðustu nótt sást til fimm dróna í borginni og hefur lögregla ekki haft upp á þeim sem stjórnuðu þeim. Þann 20. janúar sl. sveimuðu drónar yfir bústað forsetans. Nokkuð fyrr sást til um tuttugu dróna fljúga nálægt kjarnorkuverksmiðju.

Fimm drónar sveimuðu yfir París. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert