Poppstjarnan í 16 ára fangelsi

Fyrrum poppstjarnan Gary Glitter.
Fyrrum poppstjarnan Gary Glitter. AFP

Fyrrum poppstjarnan Gary Glitter hefur verið dæmdur í sextán ára fangelsi fyrir að brjóta kynferðislega gegn þremur ungum stúlkum á árunum 1975 til 1980.

Glitter var fundinn sekur fyrir tilraun til nauðgunar, kynferðisbrot og fyrir að nauðga 12 ára gamalli stúlku.

Við dómsuppkvaðninguna í dag sagði dómarinn Alistair McCreath að hann hafi ekki fundið neinar sannanir á því að Glitter, sem heitir í raun Paul Gadd, hafi bætt fyrir glæpi sína. 

Glitter, sem er sjötugur, sýndi lítil geðbrigði er hann yfirgaf dómsalinn í dag. Bætti dómarinn við að brot Glitter hafi haft gífurleg áhrif á öll hans fórnarlömb. 

Eins og fram hefur komið í fyrri fréttum var Glitter dæmdur sekur fyrr í mánuðinum fyrir að brjóta á þremur ungum stúlkum. Ein þeirra var yngri en tíu ára þegar hann braut gegn henni og hinar tvær tólf og þrett­án ára.

Árið 1975 skreið Glitter upp í rúm til yngstu stúlk­unn­ar og reyndi að nauðga henni. Braut hann gegn eldri stúlk­un­um tveim­ur eft­ir að hafa boðið þeim inn í bún­ings­her­bergi sitt. Eiga brotin að hafa átt sér stað á hápunkti ferils Glitter.

Glitter hefur ætíð neitað sök. 

Frétt BBC í heild sinni.

Gary Glitter mætir til réttarhalda í síðasta mánuði. Hann hefur …
Gary Glitter mætir til réttarhalda í síðasta mánuði. Hann hefur ætíð neitað sök í málinu. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert