Sektaður fyrir ástleysið

Karlmaður í Tyrklandi hefur verið sektaður fyrir að segja „Ég elska þig ekki“ við eiginkonu sína. Þessu greinir tyrkneski miðillinn Daili Sabah frá.

Hjónin standa í skilnaði og höfðu þau bæði sóst eftir bótum hvort frá öðru vegna móðgana sem virðast hafa farið þeirra á milli á meðan á hjúskap þeirra stóð.

Konan sagðist hafa verið tilfinningalega eyðilögð vegna yfirlýsinga mannsins og að hann hafi margsinnis yfirgefið hana. Hann hélt því hinsvegar fram að konan hafi síendurtekið blótað honum.

Á lægra dómsstigi komust dómarar að því að þau væru bæði jafn slæm en Hæstiréttur taldi hinsvegar að þessi móðgun eiginmannsins flokkist sem andlegt ofbeldi. Manninum var því gert að borga konunni bætur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert