Hrottalegt morð skekur smábæ

Morðið var framið í smábænum Landrecies
Morðið var framið í smábænum Landrecies Carte de l'Avesnois

Hræðilegt morð á átta ára gamalli stúlku skekur nú franska smábæinn Landrecies en í gærkvöldi stakk faðir dóttur sína til bana en foreldrar stúlkunnar skildu fyrir nokkrum vikum.

Samkvæmt frétt Le Parisien reyndi maðurinn að fremja sjálfsmorð í kjölfarið en mistókst. Hann og móðir stúlkunnar skildu fyrir þremur vikum og var hún hjá pabba sínum um helgina.

Í gærkvöldi sendi hann sms til móður stúlkunnar um að hún myndi aldrei sjá stúlkuna á ný og hann ætlaði að fremja sjálfsvíg. Þegar móðirin fékk skilaboðin hafði hún strax samband við bróður mannsins sem býr skammt frá. Hann fór á vettvang og þar sem enginn svaraði hafði hann strax samband við neyðarlínuna.

Í svefnherbergi íbúðarinnar fundust þau feðgin í rúminu, hún látin með fjölmörg stungusár. Faðirinn hafi reynt að fremja sjálfsvíg með loftbyssu en sárin voru smávægileg og er hann í haldi lögreglu. 

Íbúar Landrecies eru um 3.500 talsins en bærinn er í þjóðgarðinum í l'Avesnois.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert