Níu ára drengur var fluttur á sjúkrahús eftir að tíu ára bróðir hans ók yfir hann á stolnum bíl í Michigan í Bandaríkjunum.
Í frétt AP-fréttastofunnar kemur fram að lögreglan hafi fengið tilkynningu frá móður drengjanna á sunnudag um að þeir hefðu brotist inn á bílasölu og keyrt bíla um lóð hennar.
Lögreglan kom á svæðið og flutti strákana heim til sín. Nokkrum tímum síðar barst tilkynning um að níu ára drengur væri fastur undir bíl við heimilið. Lögreglan segir að bræðurnir hafi farið aftur á bílasöluna og stolið bílum og ekið þeim um heimabæ sinn, Roscommon.