Kom með líkið á pallbílnum

Wikipedia

Lögreglan í Flórída rannsakar mál manns sem kom akandi með lík nágranna síns á pallbílnum sínum til lögmannsskrifstofu.

Maðurinn sagðist hafa skotið nágranna sinn í sjálfsvörn er þeir tókust á, að því er lögmaður hans segir. Maðurinn var fluttur á sjúkrahús með áverka eftir átökin við nágrannann sem hann svo skaut til bana.

Mennirnir búa í smábænum Bokeelia en þar búa um 2.000 manns. 

Lögmaðurinn segir að maðurinn hafi  hringt í sig deginum áður en hann skaut nágranna sinn. Hann sagðist þá óttast um öryggi sitt. Í frétt AP-fréttastofunnar um málið segir að ekki sé ljóst hvers vegna mennirnir rifust. Þó er talið að málið snúist um eignarrétt á byggingu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert