Laust gestinum kinnhest

Frá undirbúningi kjötkveðjuhátíðar í Nice í síðasta mánuði en þar …
Frá undirbúningi kjötkveðjuhátíðar í Nice í síðasta mánuði en þar voru þessar stóru brúður af Trierweiler og Hollande til skrauts. mbl.is/afp

Valerie Trierweiler, fyrrverandi lagskona Francois Hollande Frakklandsforseta hefur verið kærð fyrir að ljósta gest kaffihúss í París kinnhest.

Lögregla staðfestir að kæra hafi verið lögð fram, en atvikið átti sér stað í gær í 15. hverfi borgarinnar.

Málavextir ku vera þeir, að karlmaður sem sat að kaffidrykkju vatt sér að Trierweiler of hóf að spyrja hana hvernig Hollande hefði það, en þau skildu í fyrra. Kunni frú Valerie lítt að meta ókurteisi og framgang mannsins og virðist henni hafa verið höndin laus því eftir nokkur orðaskipti sá hún þess vænstan kostinn að gefa manninum á lúðurinn áður en hún gekk á braut eins og ekkert hefði í skorist.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert