Aldraðri nunnu nauðgað af hópi manna

 Indverskri nunnu á áttræðisaldri var nauðgað af hópi karlmanna í gærmorgun. Konunni var nauðgað af sex innbrotsþjófum að því er fram kemur á vef BBC. Þeir brutust fyrst inn í skóla við klaustrið þar sem nunnan býr og rændu fjámunum. Í kjölfarið fóru þeir inn í klaustur þar sem þeir bundu tvær aðrar nunnur og einn vörð við stóla á meðan að þeir nauðguðu konunni.  

Nemendur skólans flykktust út á götur borgarinnar Ranaghat í gærmorgun til að krefjast réttlætis. Lögreglan á Indlandi kveðst hafa hafið rannsókn á málinu. Samkvæmt BBC náðust andlit þrjótanna á öryggismyndavél í skólanum. Ekki er ljóst hvort um hatursglæp er að ræða en margir talsmenn kristinna á Indlandi segja að hatursglæpum gegn kristnum fari fjölgandi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert