Flugvél hlekktist á við lendingu

AFP

Flugvél Air Canada hlekktist á við lendingu á flugvellinum í Halifax í Kanada í morgun. Alls voru 25 farþegar fluttir á sjúkrahús, en enginn þeirra er alvarlega slasaður, að því er segir í frétt NBC News. Meirihluti þeirra var með minniháttar meiðsli.

Lögreglan segir að vélinni hafi verið flogið á raflínur við flugbrautina. Alls voru um 132 farþegar um borð í vélinni en hún var á leið til Halifax frá Toronto. Rafmagnslaust varð í flugstöðinni í kjölfarið en rafmagn komst á nokkrum klukkutímum síðar.

Mikill snjór var á flugbrautinni og skyggni lélegt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert