Ömmur sitja naktar fyrir

Forsíða dagatalsins er skemmtileg.
Forsíða dagatalsins er skemmtileg. AFP

Fyrirsætur dagatals til styrktar góðgerðarmálum í Ohio sitja naktar fyrir. Það væri svo sem ekki í frásögur færandi nema að fyrirsæturnar eru ömmur á elliheimilinu Pleasant Pointe.

Á mynd marsmánaðar er klæðalítil 88 ára gömul kona. Ungfrú febrúar er Dottie Rutter sem liggur brosandi í freyðibaði. Rutter er 87 ára. Dagatalinu er ætlað að safna peningum fyrir fátæk börn í skóla í nágrenninu.

Forstöðumaður heimilisins segir að fyrirsæturnar hafi skemmt sér konunglega í myndatökunni. „Þær voru eins og tvítugar stúlkur, flissuðu og skemmtu sér hið besta,“ segir forstöðumaðurinn. Hann segir að gamalt fólk vilji ekki bara sitja aðgerðarlaust. Það vilji lifa lífinu og eigi að gera það.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert