Grænir karlar ekki heimsótt Japan

Varnarmálaráðherra Japans, Gen Nakatani, í heimsókn í Bandaríkjunum.
Varnarmálaráðherra Japans, Gen Nakatani, í heimsókn í Bandaríkjunum. Wikipedia

Geimskip geimvera hafa aldrei komið inn í lofthelgi Japans. Þetta upplýsti varnarmálaráðherra landsins, Gen Nakatani, japanska þingið um eftir að hafa fengið fyrirspurn þess efnis frá þingmanninum Antonio Inoki samkvæmt frétt AFP.

Fram kemur í fréttinni að Nakatani hafi fullvissað þingmennina um að ef litlir grænir karlar létu á sér kræla með þeim hætti gætu herflugvélar landsins tekið á málinu. Herflugvélar væru sendar á loft í hvert sinn sem vart yrði við óþekkt flugfar. Sagðist hann ekki vita til þess að um flugfar utan að úr geiminum hefði verið að ræða til þessa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert