Við grafhvelfingu Jesú

Grafhvelfingin.
Grafhvelfingin. Af Wikipedia

Um 1.500 manns komu saman við sólarupprás í Jerúsalem í dag til að fagna páskahátíðinni. Á páskadag telja kristnir að Jesú hafi risið upp frá dauðum eftir að hafa verið krossfestur.

Í morgun var sólríkt en napurt er kristnir víða að úr heiminum komu að steinhvelfingunni sem margir trúa að sé á staðnum þar sem Jesú var krossfestur og svo grafinn.

Hvelfingin er í austurhluta Jerúsalem. Hvelfingin fannst á nítjándu öld og var fljótt álitin sú hin sama og Jesú var grafinn í. 

„Það er svo undursamlegt að vera hér,“ segir 41 árs kona frá Suður-Kóreu.

„Við höfum aldrei upplifað neitt þessu líkt,“ segir kona frá Pakistan. „Það er magnað að sjá svona margt fólk víða að úr heiminum og vera á staðnum þar sem Jesús bjó og gekk um.“

AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert