Faldi sig í svefnherbergi stúlku

Leikvöllurinn þar sem maðurinn rændi Chloe í gær
Leikvöllurinn þar sem maðurinn rændi Chloe í gær AFP

Karlmaðurinn sem nam hina níu ára gömlu Chloe á brott af leikvelli í París í gær, nauðgaði henni og myrti, faldi sig í svefnherbergi barns árið 2009, vopnaður hnífi.

Hann stökk úr felustað sínum þegar móðir barnsins kom inn í herbergið til að athuga með það og forðaði sér því næst út um opinn glugga.

Frétt mbl.is: Hvernig getur svona gerst?

Maðurinn ræddi síðar við sálfræðing í fangelsi þar sem hann afplánaði dóm. Sagðist hann meðal annars „ekki vera eins og annað fólk“ og var hann metinn hættulegur.

Faðir barnsins sem maðurinn faldi sig hjá á sínum tíma ræddi við Le Parisien. „Við höfðum gluggann opinn þar sem þetta hafði verið heitur dagur,“ segir faðirinn. „Um ellefuleytið fór eiginkona mín inn í herbergi dóttur okkar til að athuga hvort hún væri sofandi.“

Maðurinn segir að hún hafi séð skugga undir borði í horni herbergisins. Hún gekk nokkur skref aftur á bak og þá stökk maður að henni vopnaður stórum hnífi og otaði honum að andliti hennar.

„Eiginkona mín sagði dóttur okkar að flýja og hún hljóp til mín að sækja mig,“ segir faðirinn en þegar hann var kominn inn í herbergið var maðurinn horfinn. „Stúlkan mín var á sama aldri og Chloe. Hann gæti hafa drepið hana. Af hverju var maðurinn enn á svæðinu þar sem hann framdi þessa glæpi?“ spyr faðir stúlkunnar.

Zbigniew Huminski nauðgaði stúlkunn og myrti hana.
Zbigniew Huminski nauðgaði stúlkunn og myrti hana. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert