Fjórir hermenn nauðguðu konu

Frá kanadísku borginni Halifax.
Frá kanadísku borginni Halifax. mbl.is/Árni Sæberg

Kanadíska herlögreglan ákærði í dag fjóra breska sjóliða fyrir kynferðisbrot en þeir eru grunaðir um að hafa hópnauðgað kanadískri konu í borginni Halifax í Kanada. Konan sem um ræðir er óbreyttur borgari

Fram kemur í frétt AFP að um fjóra karlmenn sé að ræða, Craig Stoner, Darren Smalley, Joshua Finbow og Simon Radford. Hópnauðgunin átti sér stað samkvæmt ákærunni í síðustu viku í hófi sem haldið var í Shearwater-herstöðinni í Halifax.

Bresku sjóliðarnir voru gestkomandi í herstöðinni vegna þátttöku í íshokkíkeppni á vegum kanadíska hersins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert