Barnið hékk á höfðinu

Maðurinn kemur stúlkunni til bjargar.
Maðurinn kemur stúlkunni til bjargar.

Verkamanni í Singapore tókst með snarræði að bjarga ungri stúlku sem hafði dottið á milli rimla í handriði á annarri hæð á fjölbýlishúsi og hékk þar á höfðinu. Maðurinn sem kom henni til bjargar var við vegavinnu í nágrenni hússins.

Maðurinn segist hafa heyrt öskur og grát og hlaupið á vettvang. Á myndskeiðinu hér að neðan má sjá hann klifra upp á svalir með aðstoð félaga sinna og bjarga stúlkunni.

Frétt Telegraph.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert