Segist ósakhæfur vegna geðveiki

Konan fannst látin í garði við hús í Edmonton í …
Konan fannst látin í garði við hús í Edmonton í London AFP

Maður sem grunaður er um að hafa afhöfðað 82 ára konu í norðurhluta London segist vera ósakhæfur þar sem hann glímir við geðsjúkdóm. Maðurinn, sem er á þrítugsaldri, ráðst á konuna í garði við hús hennar.

Svo virðist sem tilviljun hafi ráðið því að konan varð á vegi mannsins. Lögregla var með mikinn viðbúnað þegar hún yfirbugaði manninn og braut meðal annars rúðu í húsum í nágrenninu til að hleypa fólki út. Maðurinn réðst á hund með hníf á lofti eftir að hann myrti konuna.

Réttarhöld yfir manninum hefjast í júní.

Skar höfuð af 82 ára gamalli konu

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert