Hin 22 ára Hannah Wilson sem fannst látin í gær í Indiana-ríki í Bandaríkjunum var barin til dauða.
Talið er að hún hafi verið slegin í höfuðið þrisvar til fjórum sinnum með barefli sem fannst ekki á vettvangi. Lík ungu konunnar var fullklætt og bendir ekkert til þess að henni hafi verið nauðgað.
Tæplega fimmtugur maður var handtekinn í gær, grunaður um morðið. Ekki er vitað hvort Wilson þekkti manninn eða af hverju hann vildi vinna henni mein.
Lík Wilson fannst 32 kílómetrum frá háskólanum í Indiana þar sem hún var við nám sama dag og tilkynnt var um hvarf hennar.