Síminn hefur ákveðið að viðskiptavinir greiði ekki fyrir símtöl til Nepal út maí, hvort sem hringt er úr farsíma eða heimasíma.
Á laugardag reið öflugur skjálfti yfir Nepal og féll mannskætt snjóflóð í kjölfarið í hlíðum Everest. Þúsundir hafi látist vegna afleiðinga skjálftans.