Stakk 9 ára gamlan dreng til bana

William Schultz.
William Schultz.

„Ég vildi vita hvernig það væri að taka líf einhvers áður en einhver reyndi að taka mitt,“ sagði hinn 18 ára gamli William Schultz þegar hann játaði í gær að hafa myrt hinn níu ára gamla Jordon Almgren.

Schultz var handtekinn á sunnudag fyrir morðið á drengnum, sem hafði verið stunginn til bana á heimili sínu sama dag. Maðurinn þekkti drenginn, en fjölskyldur þeirra hafa lengi átt vinasamband. Schultz hafði verið í heimsókn hjá fjölskyldu Almgrens kvöldið áður og gist þar um nóttina.

„Ég vildi að ég hefði ekki gert þetta. Ég hugsa með mér hvernig þetta væri ef þetta hefði verið litli bróðir minn,“ sagði Schultz jafnframt í yfirheyrslum hjá lögreglu, en hann hefur lengi glímt við geðræn vandamál.

Manninum er haldið í Martinez fangelsinu í Kaliforníu á meðan hann bíður réttarhalda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert