101 árs manni bjargað í Nepal

Björgunarmenn að störfum í Nepal.
Björgunarmenn að störfum í Nepal. AFP

101 árs gömlum manni var bjargað úr rústum í Nepal, sjö dögum eftir að mannskæður jarðskjálfti reið yfir landið. Manninum var bjargað í gær. Yfirvöld í Nepal lýstu yfir í dag að litlar líkur væru á að finna neinn á lífi í rústunum.

Alls hafa rúmlega 7.000 fundist látnir í Nepal frá því jarðskjálfti skók landið fyrir rúmri viku. Aðaláhersla björgunarfólks er nú á að koma nauðþurftum til fólks.

Það hefur þó í mörgum tilvikum reynst þrautin þyngri, því tollverðir í Nepal taka í mörgum tilvikum það sem virðist vera óþarflega langan tíma til að tollafgreiða nauðþurftir á leið inn í landið. Þá hefur flugvöllurinn í höfuðborginni Katmandú nánast ekki undan að taka á móti flugvéum, sem hefur enn tafið björgunarstarf.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert