Mayweather sigraði Pacquiao

AFP

Floyd Mayweather sigraði Manny Pacquiao í hnefaleikabardaga þeirra í veltivigt í nótt. Mayweather er því enn ósigraður. Bardagans var beðið með mikilli eftirvæntingu, því bardagans hafði verið beðið í sex ár. Þeir Mayweather og Pacquiao þykja vera tveir bestu hnefaleikakappar sinnar kynslóðar.

Sjá einnig: „Stærsta stund hnefaleikanna

Mayweather hafði loks sigur á stigum eftir sameiginlega ákvörðun dómara eftir tólf lotna bardaga. Ákvörðunin kom Pacquiao á óvart, sem sagðist halda að hann hefði sjálfur unnið að bardaganum loknum. „Hann gerði ekki neitt,“ sagði hann um andstæðing sinn.

Fresta varð bardaganum um 45 vegna mikils álags á kerfi kapalsjónvarpsstöðva, þar sem margir áhorfendur höfðu keypt sér aðgang að bardaganum.

Eftir bardagann er Mayweather enn ósigraður á 19 ára ferli sínum, með 48 bardaga að baki. 

Stærsta stund hnefaleikanna

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert