Eiginmaður Sheryl Sandberg bráðkvaddur

Hjónin David Goldberg og Sheryl Sandberg
Hjónin David Goldberg og Sheryl Sandberg Af Facebook síðu Roberts Goldbergs

David Goldberg, eiginmaður Sheryl Sandberg, aðalframkvæmdastjóra Facebook, varð bráðkvaddur á föstudagskvöldið aðeins 47 ára að aldri að sögn bróður hans.

Robert Goldberg tilkynnti lát Davids Goldbergs, sem var framkvæmdastjóri netrannsóknarfyrirtækisins SurveyMonkey, á Facebook á laugardagsmorguninn. 

Samkvæmt fréttum bandarískra fjölmiðla liggur dánarorsök ekki fyrir en hann lætur eftir sig eiginkonu og tvö börn.

Fjölmargir minnast hans á Facebook og Twitter, þar á meðal stofnandi Facebook, Mark Zuckerberg, og stofnandi Huffington Post, Arianna Huffington.

David Goldberg
David Goldberg Af vef SurveyMonkey
Sheryl Sandberg
Sheryl Sandberg ANGELIKA WARMUTH
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert