Nauðgaði, myrti og át kærustuna

mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Karlmaður frá Indiana í Bandaríkjunum gæti átt dauðadóm yfir höfði sér en hann hefur verið ákærður fyrir að myrða fyrrverandi kærustu sína og leggja sér hluta líks hennar sér til munns. Nú hefur hann einnig verið ákærður fyrir að nauðga konunni.

Maðurinn er 34 ára og býr í Jeffersonville. Hann var ákærður í september fyrir að brjótast inn á heimili fyrrverandi kærustu sinnar, drepa hana og borða líkamsparta hennar. Hann neitaði sök.

Nú hefur nauðgun verið bætt við ákæruna og segir saksóknarinn að þar með sé mögulegt að maðurinn verði dæmdur til dauða.

Aðalmeðferð málsins hefst ekki fyrr en í ágúst árið 2016.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert