Sex formlega ákærð vegna láts Freddie Grays

Frá samstöðufundi í Baltimore.
Frá samstöðufundi í Baltimore. AFP

Ríkissaksóknarinn í Baltimore hélt í dag blaðamannafund þar sem kom fram að kviðdómur hefur ákveðið að formlega ákæra sex lögreglumenn sem taldir eru bera ábyrgð á láti Freddie Gray, ungs manns sem lést í haldi lögreglunnar í Baltimore fyrr á þessu ári.

Talið er að meðferð lögreglumannanna á honum hafi leitt til dauða hans, og verða eru þau meðal annars ákærð fyrir manndráp. 

Málið var eitt margra svipaðra mála sem leiddi til mikilla mótmæla og uppþota í Baltimore þar sem fólk gagnrýndi lögregluna harkalega fyrir framgöngu sína gegn blökkumönnum á svæðinu. 

Sjá frétt mbl.is: Búist við þúsundum á götum Baltimore

Sjá frétt New York Times

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert