Þrefaldur koss á sviðinu

Hér má sjá kossana þrjá á sviðinu í Vín í …
Hér má sjá kossana þrjá á sviðinu í Vín í gærkvöldi. Skjáskot/YouTube

Tvíeykið Monika Linkyté og Vaidas Baumila frá Litháen steig fyrst á svið í gærkvöldi og flutti lagið This Time við mikinn fögnuð viðstaddra. Lagið er fjörugt og grípandi en veðbankar spá því þó ekki góðu gengi annað kvöld, eða 21. sæti af 27. sæti. 

Auk söngvaranna tveggja eru fjórir bakraddasöngvarar á sviðinu og fagnaði salurinn verulega þegar pörin þrjú kysstust; Linkytė og Baumila, karlmennirnir tveir og konurnar tvær. 

<iframe allowfullscreen="" frameborder="0" height="315" src="https://www.youtube.com/embed/r13a2VUTajU" width="560"></iframe><div id="embedded-remove"> </div>
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert