Skýstrókur reif upp stóra trukka

Hvirfilbylur.
Hvirfilbylur. Wikipedia

Allavega 11 manns létust þegar skýstrókur fór í gegnum borgina Ciudad Acuna, á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó fyrr í dag. Um 300 hús skemmdust og sjö ára drengur er enn týndur. Strókurinn var það öflugur að hann reif upp stóra flutningatrukka og þeytti þeim hátt upp í loftið.

Skýstrókurinn varði aðeins í nokkrar sekúndur og voru flest fórnarlömbin almennir borgarar sem voru á ferð úti á götu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert