Alvarlega slösuð eftir eldsvoða

Frá Bergen.
Frá Bergen.

Kona er alvarlega slösuð eftir eldsvoða í Bergen í Noregi í nótt. Sjötíu þurftu að yfirgefa heimili sín vegna eldsvoðans. Þrír fengu væga reykeitrun.

Samkvæmt frétt norska ríkisútvarpsins var tilkynnt um eldinn klukkan 3:51 að staðartíma í nótt en kviknað hafði í stóru húsi við  Vågsbunnen í miðborg Bergen. Slökkvistarfi var lokið klukkan 5:50 að staðartíma, klukkan 3:50 að íslenskum tíma í nótt. 

Frétt NRK

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert