Myrti 16 ára kærustuna sína

Jacob Lee Boyd.
Jacob Lee Boyd.

Sautján ára gamall piltur frá Texas hefur verið ákærður fyrir að bana kærustu sinni í reiðiskasti á heimili vinar þeirra. Fyrr í vikunni var lögregla kölluð á vettvang þar sem stúlkan lá meðvitundarlaus, en hann hafði þrengt að öndunarvegi hennar svo hún lést.

Pilturinn, sem heitir Jacob Lee Boyd, hafði reiðst kærustu sinni, sextán ára gömlu Racheal Jean Wiest því hún vildi ekki stunda kynlíf með honum. Hann tók hana hálstaki og þrýsti fast að öndunarvegi hennar í 5-10 mínútur þar til hún varð blá og hætti að hreyfast.

Wiest var flutt á sjúkrahús þar sem hún lést, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Boyd játaði fyrir lögreglu strax á vettvangi og var í kjölfarið ákærður fyrir morð. 

Skólafélagar kærustuparsins sögðu lögreglu að Wiest hefði reynt að slíta sambandinu við Boyd nokkrum sinnum en hann hefði aldrei tekið það í mál.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert