Fundu brunnið lík stúlkunnar

Talið er fullvíst að brunnið lík sem fannst í Norður-Kaliforníu um helgina tilheyri sex ára stúlku sem leitað var að. Kærasti móður stúlkunnar var handtekin á laugardag, grunuð um að bera ábyrgð á dauða stúlkunnar.

Tilkynnt var um hvarf stúlkunnar síðastliðið fimmtudagskvöld og var leitin að henni umfangsmikil.

Eftir að líkið fannst var talið að það væri af stúlku á aldrinum 5 til 10 ára en síðar tilkynnti lögregla að nánast öruggt væri að um stúlkuna væri að ræða. Lögregla vildi ekki skýra nánar hvernig sú niðurstaða fékkst.

Stúlkan kom ekki í skólann alla vikuna. Ekki er vitað hvort það átti sér eðlilegar skýringar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert