Gengur raðmorðingi laus?

AFP

Grunur leikur á að raðmorðingi gangi laus í Ohio í Bandaríkjunum en fjórar konur hafa fundist látnar og tvær hafa horfið í smábæ í fylkinu á einu ári.

Alríkislögregla Bandaríkjanna, FBI, rannsakar nú málin sem hafa vakið óhug á svæðinu.

Fyrsta fórnarlambið hvarf í smábænum Chillicothe í maí á síðasta ári. Lík fjögurra kvenna hafa fundist í lækjum og víkum nálægt bænum síðan þá.

„Ég vil ekki segja „Já þetta er fjöldamorðingi“ en þetta er lítið samfélag sem við búum í og fjöldi kvenna sem hafa horfið og líkin sem við höfum fundið, þetta er svolítið mikið fyrir okkar samfélag,“ sagði lögreglufulltrúinn Mike Preston á blaðamannafundi. „Samfélagið er orðið áhyggjufullt. Allir vilja svör.“

Flestar konurnar voru eiturlyfjafíklar og höfðu sumar þeirra starfað sem vændiskonur til þess að fjármagna neysluna. 

Fyrsta konan sem hvarf hét Charlotte Trego. Hún var 28 ára gömul tveggja barna móðir. Hún sást síðast 3. maí í fyrra. Sama dag hvarf Tameka Lynch, þrítug þriggja barna móðir. Vitað er til þess að Trego og Lynch hafi þekkt hvor aðra. Lík Lynch fannst 24. maí í vatni rétt fyrir utan Chillicothe.

Samkvæmt krufningarskýrslu lést hún vegna ofneyslu eiturlyfja en móðir hennar, Angela Robinson, telur að dóttir hennar hafi verið látin þegar hún var sett í vatnið.

„Hún var dauðhrædd við vatn. Hún gat ekki synt og var hrædd við skóginn,“ sagði Robinson í samtali við ABC News.

Þriðja konan sem hvarf heitir Wanda Lemons. Það heyrðist síðast frá henni 1. nóvember á síðasta ári. Hún á fimm börn en Lemons er enn ófundin. Á jóladag 2014 hvarf Shasta Himelrick en hún var tvítug. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var hún ólétt þegar hún hvarf en hún fannst látin 2. janúar ofan í á. Samkvæmt krufningu drekkti hún sér en engir áverkar fundust á líkinu.

Fimmta konan hét Timberley Clayton. Lík hennar fannst í skurði í síðasta mánuði. Hún hafði verið skotin í höfuðið þrisvar en samkvæmt lögreglu er einn aðili grunaður um  málið.

Sjötta konan hét Tiffany Sayre og hvarf 11. maí á síðasta ári eftir að hún kláraði vaktina sína á móteli. Sayre var tveggja barna móðir. Lík hennar fannst vafið í lak í niðurfalli 20.júní.

Tæplega 22,000 búa í Chillicothe sem í um 96 kílómetra fjarlægð frá borginni Columbus.

Sky News segir frá þessu. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert