Hvetur kjósendur til að segja nei

Alexis Tsipras, forsætisráðherra Grikklands.
Alexis Tsipras, forsætisráðherra Grikklands. AFP

Alexis Tsipras, forsætisráðherra Grikklands, hefur hvatt kjósendur í landinu til að hafna kröfum kröfuhafa í þjóðaratkvæðagreiðslu um skuldakreppu Grikkja á sunnudaginn næstkomandi.

Tsipras segir það ljóst að atkvæðagreiðsla um aðhalds­kröf­ur alþjóðlegra lánar­drottna landsins í skipt­um fyr­ir frek­ari lána­fyr­ir­greiðslur muni hjálpa Grikkjum að fá betri niðurstöðu í kreppunni. Ef þjóðin hafni ekki kröfunum segist hann þó ekki vilja vera áfram í embætti til að hafa umsjón með frekari niðurskurði.

Nú­ver­andi björg­un­ar­áætl­un Grikkja renn­ur út á þriðju­dag­inn, en þá þurfa þeir að standa skil á 1,5 millj­arða evra af­borg­un af láni Alþjóðagjald­eyr­is­sjóðsins. 

Ráðamenn í Evr­ópu virðast á einu máli um að yf­ir­vof­andi þjóðar­at­kvæðagreiðsla í Grikklandi snú­ist um aðild rík­is­ins að evru­sam­starf­inu, þ.e. val á milli evru eða drökmu. Tsipras segist hins vegar ekki vilja að landið yfirgefi evrusvæðið.

Í síðustu viku slitnaði upp úr samn­ingaviðræðum grískra stjórn­valda við lán­ar­drottn­ana eft­ir út­spil Tsipras, sem ákvað að boða til þjóðar­at­kvæðagreiðslunnar. Í kjöl­farið fóru að mynd­ast biðraðir við gríska hraðbanka og hafa marg­ir millj­arðar evra hafa verið tekn­ir út úr hraðbönkum og bönk­um í land­inu á und­an­förn­um vik­um. 

Þá ákvað rík­is­stjórn Grikk­lands að bank­ar þar í landi yrðu lokaðir alla vik­una, sem liður í aðgerðum til þess að koma í veg fyr­ir end­an­legt hrun í gríska efna­hags­kerf­inu. Ákvörðunin kom í kjöl­far þess að bankaráð Evr­ópska seðlabank­ans til­kynnti um helgina að neyðarlausafjáraðstoð, sem grísku bank­arn­ir hafa reitt sig á til að halda sér á floti, yrði haldið óbreyttri en ekki auk­in. Óvissan olli einnig greiðslufalli í gær.

Tugir þúsunda manna söfnuðust utan við gríska þingið í Aþenu á í gærkvöldi til að sýna tillögum ríkisstjórnarinnar stuðning.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert