Kanslari Þýskalands, Angela Merkel, kannast ekki við að nýjar tillögur hafi verið lagðar fram af hálfu Evrópusambandsins að mögulegu samkomulagi um skuldamál Grikkja.
Fréttir herma að Jean-Claude Juncker, forseti framkvæmdastjórnar sambandsins, hafi kynnt slíkar tillögur í dag fyrir forsætisráðherra Grikklands, Alexis Tsipras. Merkel sagði aðspurð við blaðamenn í dag samkvæmt frétt AFP: „Það eina sem ég veit er að síðasta tilboðið sem mér er kunnugt um er frá því á föstudaginn. Ég get ekkert meira um þetta sagt.“
Grísk stjórnvöld höfnuðu tilboðinu sem lagt var fram á föstudaginn síðasta og í kjölfarið boðaði Tsipras þjóðaratkvæði um það sem fyrirhugað er að fari fram á sunnudaginn. Hefur hann hvatt landa sína til þess að hafna tilboðinu.