Sir Nicholas Winton, sem skipulagði björgun 669 barna sem ella hefðu endað í útrýmingarbúðum nasista, er látinn. Hann var 106 ára. Winton starfaði sem verðbréfasali þegar hann skipulagði brottflutning barna gyðinga frá Prag eftir að borgin var hernumin.
BBC hefur eftir tengdasyni Winton að hann hafi látist í svefni á Wexham sjúkrahúsinu í Slough. Andlát hans bar upp á sama dag og brottför þeirrar lestar sem flutti flest barnanna í öruggt skjól árið 1939. Þau voru 241.
Winton flutti börnin til Bretlands með mikilli fyrirhöfn og kom þeim fyrir hjá breskum fjölskyldum sem þáðu 50 pund fyrir. Hann þagði um góðverkið í hálfa öld en var sleginn til riddara af Elísabetu Bretadrottningu í mars 2003.
Sonur Winton sagði þetta um arfleifð föður síns:
„Hún snýst um að hvetja fólk til að skipta sköpum og bíða ekki eftir því að eitthvað sé gert eða einhver annar geri það.“