Sprengdu tvær sprengjur

Sprengjuárásir eru tíðar í Nígeríu.
Sprengjuárásir eru tíðar í Nígeríu. AFP

Að minnsta kosti átján létust er tvær sprengjur sprungu í nígerísku borginni Jos í gær. Skæruliðar Boko Haram hafa verið mjög herskáir undanfarna daga og gert margar árásir. Í þeim hafa óbreyttir borgarar fallið.

Lögreglan í Jos segir að í gær hafi tvær sprengjur sprungið og í það minnsta átján manns fallið. Sprengjurnar sprungu í nágrenni verslunarkjarna og vinsællar mosku. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert