Stundaði kynlíf með nemendum sínum

Fichter var með lágt sjálfsmat og leið betur með því …
Fichter var með lágt sjálfsmat og leið betur með því að sofa hjá drengjunum. Skjáskot af Youtube

Kennari í Flórída fylki Bandaríkjanna hefur verið dæmd í 22 ára fangelsi fyrir að brjóta kynferðislega á þremur nemendum sínum. Konan heitir Jennifer Fichter og er þrítug. Hún hefur verið dæmd fyrir 37 kynferðisbrot gegn börnum en fórnarlömb hennar voru þrír karlkynsnemendur.

Í réttarhöldunum kom fram að Fichter, sem kenndi ensku, átti í kynferðislegu sambandi með þremur sautján ára drengjum. Hún varð ólétt eftir einn þeirra og fór í fóstureyðingu.

Að sögn sálfræðings sem bar vitni við réttarhöldin sótti Fichter í drengina vegna þess að hún var með lágt sjálfsmat og leið betur með sig þegar hún var með þeim. 

Fichter var handtekin í apríl á síðasta ári eftir að móðir eins drengsins fann óviðeigandi og kynferðisleg skilaboð frá kennaranum á síma sonar síns. Hún hafði samband við lögreglu og var Fichter handtekin í kjölfarið.

Tveir aðrir nemendur hennar komu fram stuttu síðar og sögðu frá sinni reynslu af Fichter.

The Independent segir frá þessu og hér fyrir neðan má sjá frétt Fox News um málið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert