Morðinginn átján ára gamall

AFP

Átján ára þýskur piltur hefur verið handtekinn grunaður um að hafa skotið eldri konu og hjólreiðamann til bana skammt frá bænum Ansbach í Bæjaralandi.

Samkvæmt frétt BBC skaut hinn grunaði á fólkið úr bifreið sinni og létust þau strax. Hann skaut á tvo til viðbótar en þeir sluppu ómeiddir.

Lögreglan handtók manninn á bensínstöð þar sem hann hótaði starfsfólki með byssu en það náði að yfirbuga hann.

Ekki liggur ljóst fyrir hvað lá að baki morðunum en talið að um persónulegar ástæður séu þar að baki. Lögregla telur að konan, 82 ára, sé skyld byssumanninum en nafn hans hefur ekki verið gefið upp. 

Lögreglan leitar byssumanns

AFP
AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert